----Íris----
23.09.2006 22:09:47 / irishs

endalokin

Ég hugsa að ég hætti bara með þessa síðu..... Fréttir af okkur og bumbupúkanum okkar eru á barnaland síðunni okkar :)

http://www.barnaland.is/barn/51282

Takk fyrir mig :*


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.08.2006 17:26:35 / irishs

-.-.-.-.-STÓRAR FRÉTTIR-.-.-.-.-

Jamm og já krakkar mínir.......

Hér kemur sko stór tilkynning til allra sem vilja vita :)

 ~ ~ ÉG ER AÐ VERÐA MAMMA ~ ~ 

Ég og hann Guðni minn eigum von á litlu kríli í febrúar árið 2007 8) 8) Okkur hlakkar svoooooooo mikið til :) ég er sem sagt komin 3 mánuði á leið og hefur aldrei liðið betur :) 

Vildi bara koma þessu á framfæri.......

Annars er bara allt gott að frétta bara vinna á fullu eins og vanalega. :D

Bestu kveðjur til ykkar allra sem lesið ennþá þetta blogg mitt, þó ég sé ekki nógu dugleg við að skrifa...

Íris og Bumbi ;) ;)


» 14 hafa sagt sína skoðun

11.08.2006 16:52:17 / irishs

Það er allt á fullu allstaðar.....

Hæjjjj múslurnar mínar:)

Nokkrir punktar.............

* Af mér og mínum er allt gott að frétta...

* Ég er sem sagt byrjuð að vinna aftur eftir LANGGT sumarfrí...

* Við fórum til Englands 20.júlí og það var æði, hitti pabba hans Guðna og skoðaði London BABY!!!

* Ég er erðin 20. ára :) LOKSINS

* Við gerðum eilla ekki neitt um verslunarmannahelgina, nema að slappa af, fórum uppí sveit til mor og far. Það var bara mjög næs.

*Keyrðum Snæfellsneshringinn á Laugardaginn. (smá road trip)

* Það er EKKERT í sjónvarpinu núna og ég veit ekki hvað ég á af mér að gera....

* Erum að fara í Pizzaveislu til Péturs og Karenar í kvöld... Mmmmmmm

* Guðni er að fara að hætta hjá sendibílastöðinni.

* Man ekki fleiri fréttir í bili.....

Írisin kveður að sinni :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.07.2006 11:41:34 / irishs

ER VIRKILEGA AÐ KOMA HAUST ???? NÚNA Í JÚLÍ?????

HæHó það eru að koma Jól... nei ég segi bara svona! Það er ömurlegt veður úti og ég nenni ekki neinu.

Ég er sko búin að vakna 6 sinnum núna í morgun og drattaðist loksins fram úr núna kl hálf 12!!!

Ég er að fara í Leikhús í kvöld að sjá FOOTLOOS með mömmu, pabba og Valdísi. Það verður örugglega gaman, það er líka svo langt síðan ég hef farið í leikhús...

Humm hvað get ég sagt ykkur fleira sniðugt....

Það styttist óðum í útlandið, förum út á Fimmtudaginn næsta :)

Ég er allveg að missa mig af gleði yfir svolitlu sem ég var að komast að :D gaman gaman

Er ennþá í þessu blessaða sumarfríi mínu og get ekki beðið eftir að fara að vinna aftur...

Dojjing nenni ekki að finna uppá meira bulli til að skrifa hérna...

Bæjó Spæjó

Íris :D


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.06.2006 23:31:55 / irishs

bloggi bloggi

Jæja það er víst ekki allveg dautt þetta elsku blogg mitt.

 

Ég hugsa að ég haldi aðeins áfram með þetta, allavega á mðan ég er í sumarfríinu...

Ég er sem sagt í fríi núna og verð allveg þangað til 25. júlí. og merkilegt nok þá er mér strax farið að leiðast, hef lítið sem ekkert að gera á daginn, sef bara frameftir eins og ég fái borgað fyrir. Fer út með hundana í labbitúr niðrí fjöru, Svo yfirleitt að passa um 4 leitið annað hvort 3 litla sætulíusa eða fyrir Grétu vinkonu Elísu, eina litla snúllu :)

Þannig eru nánast allir dagarnir framundan í fríinu, nema 4 yndislegir dagar sem fara í það að vera í GREAT BRITAN :) :) :) :) LONDON BABY.......

Hún Helga sem ég er að passa fyrir, hún er sko allgjör hörkukona skal ég segja ykkur... Hún er 25 ára og er með 3 börn. Eina 4 ára prinsessu, 2 1/2 patta ogsvo 4 mánaða kríli. Hún á sko skilið að fá hrós mánaðarins. Ég hreinlega dáist að dugnaði hennar.

En hafiði pælt í því að þegar maður er svona mikið í fríi hvað maður verður allveg hrikalega LATUR?????? Ég bara spyr.... Er ég ein um þetta eða hvað???

Það eru undur og stórmerki að fara að gerast á morgun, ÉG er að fara að koma í Borgarnesið sjálft og LOKSINS að hitta hana Thelmu mína eitthvað meira en bara hæ og bæ :) OHH það verður svoooo gaman hjá okkur pæjunum ;) ég er bara orðin spennt  sko :) :) :)

 

Hei já, Draumur fór á hundasýningu síðustu helgi og gekk bara allveg príðilega, Hann fékk fína umsögn hjá dómaranum, "góðir vöðvar, góðar hreyfingar,fínn feldur, en svo vantaði smá fyllingu í háls og bringu" en það er nú bara eðlilegt því hann er ekki nema 4 mánaða gamall...

 

 

Svo eru hérna 2 sætar myndir af sætulíusi :)

 

Komið fínt í bili

-----Íris-----


» 6 hafa sagt sína skoðun

04.06.2006 23:08:30 / irishs

That´s what we call Closiur....

Jæjæ það er svo margt sem er búið að gerast síðan ég bloggaði síðast. hér koma smá brot af því sem er efst á lista

* Við erum flutt í nýju íbíðina okkar og erum búin að vera hér í 1 mánuð núna.

* Ég er hætt í Zöru :) (sakna samt stelpnanna þar hellings)

* Er byrjuð að vinna á Leikskólanum Smárahvammi og það er æðislegt:)

* Draumur stækkar og stækkar, hann er að fara að taka þátt í hundasýningu í ndaðan Júní.

* Ég er ekki búin að fara á djammið núna í 1 mánuð :( En það er allt í lagi peningarnir fara þá í eitthvað annað sniðugt...

* hummm....

* Dettur eiginlega ekkert meira í hug eins og er..

* Er að fara í útileigu þar næstu helgi:) víiii

* ...................

Annars er ég að pæla í að hætta bara með þessa blessuðu bloggsíðu mína, ef þá blogg skyldi kalla, ég nenni aldrei að skrifa inná þetta..... og það er ekki eins og það skoði margir þessa síðu, allavega sér maður það ekki á commentum eða gestabók að það komi nokkur einasti maður inn á þessa síðu mína, nema kanski hún Thelma mín... love you darling. Svo ég ætla að sjá til hvort það er einhver þarna úti sem hefur áhuga á því sem er að gerast hjá mér, þá skal ég reyna að bæta mig og setja inn fleiri færslur.

Annars mun þetta vera sú síðasta,

Svo ég segi bara Bæjó!!!!

                                     -----Írisin out--------


» 6 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 19:47:39 / irishs

news 23/4 2006

Jæja múslurnar mínar, þá er komið að smá fréttum. Við erum búin að vera með Draum núna í 3 vikur og allt gengur mjög vel :) Hann og Dimma eru orðnir góðir vinir. Nú fer verulega að styttast í að við flytja í Grafarvoginn, flytjum á næsta Laugardag og hlakka ekkert smá til. :D Ég vann síðasta vinnudaginn minn í Zara í gær og byrja svo á Leikskólanum í Smárshvammi á 2.maí.gleði gleði....

Ákvað að breyra aðeins um útlit á síðunni fyrst það er nú komið sumar... hafa þetta soldið summerlegt :) og bætti aðeins við í tenglanna líka....

Við kíktum aðeins á djammið í gær þannig að heilsan hefur alveg verið betri skal ég segja ykkur. Kíkti reyndar í fermingarveislu hjá Kristínu Heiðu frænku minni áðan, var nú frekar lystalaus, en það er allt í lagi :)

hérna er svo mynd af henni Dimmulimm sætustu

og Draumur mesta krúsídúlla í heimi

læt þetta duga í bili

síjú Íris


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.03.2006 17:49:42 / irishs

Laugardagur....

Jæjæ Í dag er laugardagur og ég er í fríi.... Við ætlum að halda smá grillpartý á eftir fyrst það er svona gott veður:) Sonja og Kata eru að koma í heimsókn til mín og KATA er að KEYRA í bæinn.....8| hugsið ykkur tvisvar um áður en þið farið út að keyra í bænum í dag :) nei djók Ég óska henni bara til hamingju með þennan merka áfanga í lífinu... ÉG ætla ekkert að hafa þetta langt núna farin að fá mér ÖL :) FArið varlega í kvöld þið sem eruð að fara að skralla.

OG THELMA ÞÚ ERT BEILER DAGSINS Í DAG....

Svekkelsi dagsins: litlu hárin aftan á hnakkanum á mér standa ALLTAF uppí loftið SAMA hvað ég reyni :evil:

Ánægja dagsins: það er lauagur og ég er í fríi fram á þriðjudag :haha:

Speki dagsins: farið hægt um gleðinnar dyr :!:

Þessi færsla var fyrir hana SONJU því hún er svo æðisleg að kíkja í heimsókn til mín :p

Írisin ykkar kveður að sinni :* :*


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.03.2006 14:48:34 / irishs

loksins loksins loksins

hæ elskurnar mínar

ég ætla ekkert að fara að koma með neinar afsakanir um lélegt blogg undanfarna mánuði núna... :)

en hér kemur það helsta sem drifið hefur á daga mína hér í borginni síðan ég bloggaði síðast... reyni að hafa það í rétri tímaröð en það er ekki alveg víst að ég muni það allveg, og sumt gæti allveg gleymst líka ...;)

* 31.janúar: ég sagði upp í Zöru og hætti þar með 1.maí 2006, maður helst ekkert allt of lengi á svona vinnustað...

* fór strax að leita mér að vinnu eftir það og sótti um á einum leikskóla, ákvað að athuga hvort maður fengi svar strax... og viti menn konan hringdi í mig strax kvöldið eftir og spurði hvenær ég vildi koma í viðtal... (hún var allveg æst í að fá mig, enda ekki furða á því :D)

* Fór í viðtalið á mánudeginum eftir og var ráðin á staðnum. (mín náttlega svo svakalega sjarmerandi í persónu hehe)

* Svo var djammað þarna einhverja helgina eftir það (man ekki alveg hvaða)

* Síðustu vikur eru svo búnar að fara í það að fara á mbl.is/fasteignir og skoða og skoða og leita að íbúð og hringja og fá að koma og skoða...

*Fór á árshátíð með Björgunarsveitinni í borgarnesi nýlega og það var allveg ógó gaman, fórum í óvissuferð um suðurlandið. og svo komið í borgarnesið og djammað úr sér allt vit :) Það skemmtilegasta við það var að hitta vinkonur mínar þær Thelmu, Sonju og Kötu og djamma með þeim og svo bættist ein ný við hún Agnes litla... Thelma og Sonja voru alltaf búnar að tala svo mikið um hana að mér fannst ég bara vera útundan í þeim samræðum en núna fékk ég loksins að kynnast henni og líkaði það bara vel:)

*helgina eftir það var svo árshátíð hjá verslunum Haga s.s. ZARA, Debenhams, Topshop, og útilíf. Hún var haldin á hótel loftleiðum og það var heví gaman allir vel í glasi og stuð á liðinu

Þetta eru Solla, ÉG, Maya, Lilja og Eygló í gúddí fíling :)

* Svo á síðasta fimmtudag fórum við guðni að skoða fleiri íbúðir... og þá LOKSINS fundum við draumaíbúðina okkar og við erum  búin að KAUPA hana :) gleði gleði gleði... :) Þannig að frá og með 1.maí EIGUM við heima á Breiðuvík 24 112 Grafarvogur

*Þá held ég að þetta sé komið í bili :) ég er að fara að pakka niður.... jibbí jibbí

* Þetta blogg var gert fyrir hana Thelmu mína sem ég sattna svoooo mikið love you beibí:*

 

over and out Íris


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.01.2006 18:43:22 / irishs

íbúð og vinna

hæ hó,

ég ætla nú að reyna að standa mig aðeins betur í þessum blogg heimi...

Við Guðni eru búin að vera að leita okkur að íbúð síðust daga... og við eru nokkurnveginn búin að ákveða okkur, ótrúlega næs og kósí íbúð í kópavoginum,

www.mbl.is/mm/fasteignir/fasteign/?eign=187595

ef þig hfið áhuga á að skoða hana nánar..

well im of to eat..
later Íris

» 3 hafa sagt sína skoðun

16.01.2006 12:33:06 / irishs

ekkert merkilegt að gerast...

Hæhæ, eins og titillinn á færslunni gefur til kynna þá er ekkert mikið að gerast hjá mér annað en að vinna, borða, sofa....

En fyrst ég er loksins búin að setjast niður og opna þetta blessaða blogg þá ætti maður nú að geta sett inn nokkra punkta um hitt og þetta...

* Ég fékk frí í vinnunni í gær og fór með Guðna og Begga á snjósleða uppí Jósepsdal, vorum þar nánast allan daginn, heví gaman :)

* Skólinn hjá mér er að byrja í dag, ég er í tveimur dönskuáföngum.

* Vinna alla vikuna og svo frí um helgina næstu.

* Á laugardaginn verður Staffa partý hjá Cleon og verður grímuballs ÞEMA..

* Ég ætla að vera sexy kúreki ;) hehe

* Sonja kom í bæinn á laugard, og við fórum í keilu, hittum ólöfu Erlu, hittum barnalega stráka frá Suðarkróki.

* Ég sakna Dimmulimm ógilla mikið, hún er í pössun hjá ömmu hans Guðna...

* Við ætlum að sækja hana í vikunni :)

*  veit ekki hvað ég á að bulla meira í ykkur í bili..

* bless

* takk

* - Íris


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.12.2005 17:47:53 / irishs

Jólin eru ALLVEG að koma :)

Hæ hæ og Hó Hó....

Nú er sko stutt í Jólin og ég er komin í svo mikið Jólaskap....

í fyrrakvöld skeyttim við Guðni jólatréð okkar :) það er allveg ótrúlega sætt og krúttlegt:)

Svo er mín í fríi um helgina og er búin að vera á þönum í allan dag að kaupa Jólagjafir, og er næstum búin að kaupa allar gjafirnar, það er fínt að klára þetta bara á einum degi þá þarf maður ekkert að vera að stressast yfir því ;)

Oki ég er svo að fara uppí borgarnes á eftir að djamma með henni Thelmu minni og vonandi getur Sonja komið líka þó hún sé að vinna... eeeen mig hlakkar ýkt mikið til að fara að djamma í nesinu, það er sov hrikalega langt síðan ég hitti marga af vinum mínum og sérstaklega hana Thelmu mína:*  gaman gaman

Þetta er nú bara það helsta sem ég hef að segja núna, bara aðeins að láta vita af mér, næstu daga fram að jólum verð ég bara að vinna og vinna og vinna, hjálpa kaupóðum íslendingum að velja jólagjafir, það eru bara allir að missa sig í þessu jólagjafa kaupum...

Hei já og á mánudaginn ætla ég að fara og láta setja í mig permó... I cant wait....

till next time

-Íris


» 7 hafa sagt sína skoðun

23.11.2005 20:03:23 / irishs

bloggi blogg :)

I´M ALIVE....

vildi bara láta alla vita af því :D Og það er víst komið að því að blogga aðeins... það er byrjað að hóta öllu illu ef ég fer ekki að standa mig betur:)

Sem sagt, byrja þar síðustu helgi:)

Þá fékk ég frí í vinnunni á föstudaginn og við guðni skruppum uppí sumarbústað í munaðarnesi, og það var ógisslega næs, bústaðurinn heví kósí. Við komum þangað á föstud. kvöld og hoppuðum beint oní heita pottinn... mmmm hann var sko notaður mikið alla helgina;) hehe svo fórum við bra snemma að sofa. Á laugard vöknuðum við svo um hádegi og skelltum okkur í fínan göngutúr um svæðið og fórum svo í bíltúr inní borgarnes og svo í mat til mömmu.... það er alltaf jafn kósí :*

sunnudagurinn var svo bara rólegheit, og komum heim um 6 leitið:)Svo komu sonnja og kata í bæinn og við skelltum okkur í ´bíó á Into the blue, heví góð mynd :) mæli með´henni...

Svo var vikan bara vinna vinna og vinna.

síðustu helgi var Jólahlaðborð í Zara á laugardagskvöldið og það var ótrúlega gaman á því, og svo eftir matinn og stuðið þar þá fórum við stuðboltarnir niðrí bæ að djamma meira og fórum fyrst á Vegamót og svo endaði ég með Ingu beib á PAPABALLI á Naza og þvílíkt sem ég skemmti mér vel :)

svo er vikan aftur bara búina að vera vinna vinna og vinna...

og svo núna um helgina er planið að fara í partí uppá skaga á föskvöldið, en ég var kanski að spðá í að sleppa því og koma frekar á djammið í gamla góða Borgarnesi þ.e.a.s ef það verður e-ð um að vera.....

Takk fyrir mig

kveð að sinni

-Íris


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.10.2005 17:09:36 / irishs

kítli kítl

ok ég var sem sagt kitluð af litlu systur.....

Sjö hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey...

1. eignast börn

2. ferðast um heiminn

3. giftast Guðna :*

4. verða talmeinafræðingur

5. flytja aftur til Svíþjóðar

6. eignast hús

7. djamma :)

Sjö hlutir sem ég get:

1. borðað

2. séð

3. sofið

4. lesið

5. skrifað

6. talað

7. DJAMMAÐ:)

Sjö hlutir sem ég get ekki:

1. flogið

2. verið leiðinleg

3. sagt nei

4. fundið fleira sem ég get ekki :)



Sjö hlutir sem heilla mig við hitt kynið:

1. lyktin

2. rassinn

3. ímyndunaraflið

4. húmorinn

5. kynlífið

6. útlitið

7. rómantíkin

Sjö frægir sem heilla mig

1. Guðni Butt

2. Johnny Deep

3. Brad Pitt

4. Guðni Butt

5. mamma mín

6. Ég

7. ?

Sjö orð eða setningar sem ég segi oft:

1. Þú veist....... þú veist....... þú veist.........

2. í alvöru?

3. hahahaha

4. glææætaaan!!!

5.  ó mæ god!

6. Ég elska þig :*

7. jísús kræst!

Sjö hlutir sem ég sé einmitt núna:

1. sjónvarp

2. talva

3. fiska

4. borð

5. kerti

6. myndir

7. sófa

oki þá er þetta komið..............!!!! maður þarf víst að kitla einhvern líka... Þannig að ég ætla að kitla Sonju og Thelmu :)


» 8 hafa sagt sína skoðun

15.10.2005 11:20:24 / irishs

Glætan!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

ÉG VAR BÚIN AÐ SKRIFA ÓTRÚLEGA MIKIÐ, búin að sitja og skrifa í 3 korter og svo fokking EYÐIST ALLT ÚT:klikk::klikk: :^):^):^):^):^):^)

Nenni ekki að skrifa það allt aftur

seinna

-Íris


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3